HÉÐINN er glæsilegur nýr veitingastaður í 101 Reykjavík, í endurhönnuðu húsnæði sem áður var stálsmiðjan Héðinn.
Húsnæðið var nýlega endurhannað og þessu stóra og sögufræga húsnæði breytt í hótel, veitingastað, kaffihús og bar. Landsliðskokkarnir í eldhúsinu töfra fram einfalda en gómsæta rétti, þar sem notast er við hágæða árstíðarbundið hráefni og eldhúsið opið frá morgni til kvölds.
Einstaklega fallegir salir standa til boða á Héðni. Salirnir eru tilvaldir fyrir veislur eða fundi. Allur nauðsynlegur útbúnaður fyrir veislu og fundarhöld eru til staðar. Úrval veitinga eru í boði sem henta viðburðinum sem haldin er í sölunum.